fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Réðst á liðsfélaga sinn með golfkylfu: Hann hefði átt að hugsa sig tvisvar um

Victor Pálsson
Föstudaginn 14. desember 2018 14:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

John Arne Riise, fyrrum leikmaður Liverpool, hefur tjáð sig um frægt atvik sem kom upp árið 2007.

Riise og Craig Bellamy voru þá saman hjá Liverpool og ferðuðust saman í æfingaferð til Portúgals.

Þar lentu þeir í rifrildi sem endaði með því að Bellamy réðst á Riise með golfkylfu, eitthvað sem sá síðarnefndi sér mikið eftir í dag.

Riise er búinn að fyrirgefa Bellamy fyrir árásina en þeir eru þó ekki bestu félagar í dag.

,,Ég hefði viljað að hann myndi hugsa sig tvisvar um. Hann hefði átt að fara aftur í sitt herbergi og við hefðum svo getað klárað þetta morguninn eftir,“ sagði Riise.

,,Hann var mjög skrítinn, hann var hrokafullur, fullur af sjálfstrausti og mjög hávær – hann öskraði mikið á æfingum. Ef þú stóðst í honum þá var hann hins vegar eins og stór hvolpur.“

,,Ég man þegar við mættum Fulham og Clint Dempsey sagði eitthvað við Craig og hann varð skíthræddur.“

,,Bellamy er flókinn og ég veit ekki of mikið um það. Ég get fyrirgefið honum en ég gleymi þessu ekki.“

,,Ef hann hefði hitt mig með fyrsta högginu.. Ef hann hefði lamið mig í sköflunginn þá væri ég búinn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum
Hartman í Val
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal

Hetja Bayern sökuð um að gera grín að haltrandi leikmanni Arsenal
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti
433Sport
Í gær

Eftir vonbrigðin í gær hefur Pep ákveðið hvert aðalskotmark sitt í sumar verður

Eftir vonbrigðin í gær hefur Pep ákveðið hvert aðalskotmark sitt í sumar verður
433Sport
Í gær

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni