Jamie Robson bakvörður Dundee verður rekinn frá félaginu eftir að hann klæddi sig upp sem svartan man í búningapartý sem haldið var á dögunum. Kappinn gerði sig sekan um kynþáttafordóma.
Robson klæddist upp sölumaður og málaði sig allan svartan áður en hann fór af heimili sínu, og hélt í gleðskap. Sölumaðurinn er týpa sem margir Íslendingar kannast við, sem komið hafa til Spánar. Þar eru þeir oftar en ekki á hverju horni og selja oftar en ekki skartgripi.
Þetta er hins vegar kynþáttaníð og oft verið fordæmt að leika svartan, því ætlar Dundee að öllum líkindum að reka hann.
Svona dæmi hafa komið upp reglulega á síðustu árum þar sem fólk sýnir dómgreindarleysi eða hreina og klára fordóma.