fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Árið sem enginn Íslendingur mun gleyma

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 23. nóvember 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einu erfiðasta ári í sögu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta er lokið og vann liðið ekki leik á alþjóðlegum leikdegi árið 2018. Liðið vann tvo B-landsleiki gegn Indónesíu í upphafi árs, þar mátti ekki velja bestu leikmenn liðsins. Þegar talað er um eitt versta ár í sögu landsliðsins verður hins vegar að taka með í reikninginn að liðið tók þátt í heimsmeistaramótinu í fótbolta í fyrsta sinn. Ísland er minnsta þjóð sem hefur tekið þátt í þessum stærsta íþróttaviðburði sem fram fer í heiminum. Þótt árið hafi verið erfitt er það hins vegar einnig það merkilegasta í sögu fótboltans á Íslandi. Jafnteflið gegn Argentínu í Moskvu verður rifjað upp þangað til hlýnun jarðar klárar allt.

Varnarleikurinn í molum og sóknin virkar illa

Tölfræði landsliðsins á árinu er ekki góð, liðið fékk á sig 33 mörk í 13 leikjum. Undir stjórn Lars Lagerbäck og Heimis Hallgrímssonar var þetta langsterkasta vígi liðsins og liðið hélt oftar en ekki hreinu og fékk alltaf færi sem voru nýtt. Vörnin hefur ekki virkað vel í ár, þar er ekki aðeins hægt að skella skuldinni á varnarlínuna eða markvörðinn. Liðið hefur ekki varist vel með heild. Sóknarleikurinn hefur heldur ekki virkað eins og hann á að gera; 12 mörk skoruð í 13 leikjum er ekki gott. Minna en mark í leik sem segir alla söguna. Ljóst er að Erik Hamren þarf bæði að ná að stoppa í götin og fá sóknarleikinn til að virka. Mikil vinna er fyrir höndum.

Er óheppni til í fótbolta?

Íslenska liðið gekk á guðs vegum, ef þannig má að orði komast undir stjórn Lagerbäck og Heimis. Lykilmenn voru alltaf heilir heilsu þegar mikilvægir leikir voru fram undan. Sem dæmi að á Evrópumótinu í Frakklandi var sama byrjunarlið í öllum fimm leikjunum. Fyrir Heimsmeistaramótið fór að halla undan fæti, Gylfi Þór Sigurðsson meiddist illa og skömmu síðar meiddist fyrirliðinn, Aron Einar Gunnarsson. Gylfi hafði náð fínni heilsu fyrir HM en Aron lék nánast meiddur, fórnaði sér fyrir land og þjóð og þurfti að borga fyrir það. Hann var á sjúkrabekknum næstu mánuði hjá félagsliði sínu. Í síðasta verkefni liðsins, gegn Belgíu og Katar, vantaði nánast allt byrjunarliðið. Aðeins Hannes Þór Halldórsson, Kári Árnason, Aron Einar Gunnarsson og Hörður Björgvin Magnússon tóku þátt í verkefninu af þeim leikmönnum sem leikið hafa stórt hlutverk síðustu ár. Hamren hefur því verið óhemju óheppinn.

Kemst liðið á sitt þriðja stórmót?

Þrátt fyrir að allt sem á undan er gengið og það sem talið er upp hér í töflu er hægt að horfa björtum augum til framtíðar. Fram undan er undankeppni fyrir Evrópumótið árið 2020 sem hefst í mars og lýkur seint á næsta ári. Þar er Ísland í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla í byrjun desember. Tvö lið munu fara beint áfram á stórmótið sem haldið verður um alla álfuna. Ef íslenska liðinu mistekst að tryggja sig inn á mótið í gegnum undankeppni EM eru allar líkur á að liðið fái annan möguleika í gegnum umspil. Þar sem magnaður árangur Íslands hafði komið liðinu í A-deild Þjóðadeildarinnar, sem var að ljúka, gæti það gefið liðinu möguleika á sæti á EM. Líklegast er að öll lið úr A-deild Þjóðadeildarinnar fari beint inn á EM, ef það gerist ekki er einnig afar ólíklegt að færri en átta lið fari beint inn. A-deild Þjóðadeildarinnar, líkt og aðrar deildir í þeirri keppni, gefur eitt sæti á EM í gegnum umspil sem fram fer í mars árið 2020. Ef átta lið eða fleiri tryggja sig inn í gegnum undankeppni EM, þá fer Ísland í umspil um laust sæti þar, að því gefnu að liðinu mistakist að fara inn á mótið í gegnum hina hefðbundnu leið. Það eru því ansi góðir möguleikar á að strákarnir okkar komist á þriðja stórmótið í röð, leikmenn eru á besti aldri og ef meiðslum fækkar og leikur liðsins smellur saman, eru allir vegir færir.

Leikir landsliðsins á árinu
23. mars – Mexíkó 3-0 Ísland
27. mars – Perú 3-1 Ísland
2. júní – Ísland 2-3 Noregur
7. júní – Ísland 2-2 Gana
16. júní – Ísland 1-1 Argentína
22. júní – Ísland 0-2 Nígería
26. júní – Ísland 1-2 Króatía
8. september – Sviss 6-0 Ísland
11. september – Ísland 0-3 Belgía
11. október – Frakkland 2-2 Ísland
15. október – Ísland 1-2 Sviss
15. nóvember – Belgía 2-0 Ísland
19. nóvember – Katar 2-2 Ísland

Styrkleikaflokkar fyrir undankeppni EM:
Fyrsti styrkleikaflokkur: Belgía, Spánn, Frakkland, Ítalía, Króatía, Pólland, Sviss, Portúgal, Holland, England.

Annar styrkleikaflokkur: Þýskaland, Ísland, Bosnía, Úkraína, Danmörk, Svíþjóð, Rússland, Austurríki, Wales, Tékkland.

Þriðji styrkleikaflokkur: Slóvakía, Tyrkland, Írland, Norður-Írland, Skotland, Noregur, Serbía, Finnland, Búlgaría, Ísrael.

Fjórði styrkleikaflokkur: Ungverjaland, Rúmenía, Grikkland, Albanía, Svartfjallaland, Kýpur, Eistland, Slóvenía, Litháen, Georgía.

Fimmti styrkleikaflokkur: Makedónía, Kósóvó, Hvíta-Rússland, Lúxemborg, Armenía, Aserbaídsjan, Kasakstan, Moldóva, Gíbraltar, Færeyjar.

Sjötti styrkleikaflokkur: Lettland, Liechtenstein, Andorra, Malta, San Marínó.

Draumariðill Íslands að mati DV
Pólland
Ísland
Finnland
Kýpur
Færeyjar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Væri enn bestur í deildinni 80 ára gamall

Væri enn bestur í deildinni 80 ára gamall
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sjáðu umræðurnar sem sköpuðust hér á landi í kvöld – „Greindarskerti maður“

Sjáðu umræðurnar sem sköpuðust hér á landi í kvöld – „Greindarskerti maður“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Í gær

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram
433Sport
Í gær

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu