Hlaðvarpsþátturinn, 90 mínútur hefur hafið göngu sína en um er að ræða þátt sem Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is stýrir.
Rætt verður um fótbolta við áhugaverða gesti í vetur, farið verður um víðan völl.
Næsti gestur þáttarins er Hörður Magnússon knattspyrnulýsandi og fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu.
Lífið var ekki alltaf dans á rósum er Hörður var að hefja ferilinn og voru tækifærin um tíma af skornum skammti.
Hörður segir að leikmenn í dag komi öðruvísi að hlutunum og það sé kvartað of mikið áður en reynt er af fullri alvöru.
,,Það þýðir ekkert alltaf að hringja í mömmu og kvarta. Menn þurfa að bíta á jaxlinn,“ sagði Hörður.
,,Vissulega geta aðstæðurnar vera þannig að þú sjáir ekki fram á að fá tækifæri. Það eru samt leikmenn sem eru varla komnir yfir tvítugt og hafa spilað með 2-3 félögum.“
,,Það er eitthvað öðruvísi en sem var, það voru engir umboðsmenn í gamla daga, við vorum sem betur fer lausir við þá en þeir hjálpa leikmönnum að díla við þessar stjórnir og svona.“