Þorvaldur Örlygsson, þjálfari U19 ára landsliðsins og strákarnir hans byrja með látum í undankeppni EM.
Liðið mætti Tyrklandi í dag en undankeppnin fer fram þar í landi. Athygli vakti að Andri Lucas Guðjohnsen leikmaður Real Madrid, byrjaði á bekknum. Ástæðan var hins vegar smávægileg meiðsli.
Brynjólfur Darri Willumsson kom Íslandi yfir í fyrri hálfleik en Andri Lucas kom inn í síðari hálfleik.
Hann tryggði svo íslenskan sigur í síðari hálfleik með marki á 84 mínútu, gestirnir löguðu stöðuna í uppbótartíma og lauk leiknum með 2-1 sigri Íslands. Ísland er einnig með Englandi og Moldavíu í riðlinum.
Byrjunarlið Íslands.
Patrik Sigurður Gunnarsson (m)
Hjalti Sigurðsson
Atli Barkarson
Aron Ingi Andreasson
Ísak Óli Ólafsson
Þórir Jóhann Helgason
Ísak Snær Þorvaldsson
Birkir Heimisson (f)
Brynjólfur Darri Willumsson
Stefán Árni Geirsson
Sævar Atli Magnússo