Fabinho, leikmaður Liverpool, hefur útskýrt af hverju hann fékk lítið að spila í byrjun tímabils eftir komu frá Monaco.
Það kom mörgum á óvart hversu lítið Fabinho var með Liverpool í byrjun en hann hefur verið að koma sterkur inn undanfarið.
Fabinho viðurkennir að hann hafi ekki verið nægilega sterkur til að spila í ensku úrvalsdeildinni þar sem margir hraustir leikmenn leika.
,,Ég vildi spila meira til að byrja með en ég þurfti að leggja mig mikið fram,“ sagði Fabinho.
,,Ég var að styrkja mig því enska úrvalsdeildin býður upp á aðra hluti, hún snýst meira um líkamlegan styrk.“
,,Jurgen Klopp vildi sjá mig aðlagast, kynnast liðsfélögunum og kynnast mínu hlutverki í hans leikkerfi.“