Hlaðvarpsþátturinn, 90 mínútur hefur hafið göngu sína en um er að ræða þátt sem Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is stýrir.
Rætt verður um fótbolta við áhugaverða gesti í vetur, farið verður um víðan völl.
Næsti gestur þáttarins er þjálfari HB í Færeyjum, Heimir Guðjónsson sem var lengi þjálfari FH hér heima.
Heimir var næst því að yfirgefa FH árið 2014 er Breiðablik vildi fá hann til að taka við meistaraflokk.
Heimir viðurkennir það að áhuginn hafi verið til staðar en hann fékk góð ráð frá Lúðvíki Arnarssyni sem sat þá í stjórn FH.
,,Já, það voru einhverjar þreifingar þá. Ég man eftir því en það var einn ákveðinn maður, maður sem ég met mikils sem hringdi í mig og talaði við mig heillengi,“ sagði Heimir.
,,Hann sannfærði mig um það að það væri ekki rétta að fara úr klúbbnum á þessum tímapunkti.“
,,Ég gæti aldrei handsalað samning og brotið hann, það gengur ekki en þreifingarnar voru komnar vel á veg. Það var ekki búið að handsala neina samninga, ekki komið svo langt.“
,,Ég sé ekki eftir því í dag og Lúðvík vinur minn Arnarsson var frábær þegar hann talaði við mig á sínum tíma. Ég sá ekki eftir því á þeim tíma að halda áfram í FH.“
Meira:
Heimir ræðir einn umdeildasta leik Íslandssögunnar
Heimir ræðir umdeildan brottrekstur – Ekki fæddur í gær
Er þetta stærsti galli Heimis Guðjónssonar?