Gylfi Þór Sigurðsson hefur skorað ófá falleg mörk á ferlinum bæði með félagsliðum sínum og íslenska landsliðinu.
Gylfi skoraði frábært mark um helgina er Everton vann Leicester 2-1. Gylfi gerði sigurmark leiksins.
Miðjumaðurinn er einn besti spyrnumaður ensku deildarinnar og hefur sannað það oftar en einu sinni.
Skemmtilegt myndband var birt í gær af notandanum Icelandic Statistician á Twitter.
Þar má sjá fallegustu mörk Gylfa í ensku úrvalsdeildinni og er óhætt að segja að þau séu nokkur.
Myndbandið má sjá hér, njótið!
Gylfi Sigurdsson has now scored 50 goals in 217 PL matches. (23%)
Here are some of his best goals in the Premier League pic.twitter.com/GcSF3TeERs
— Icelandic Statistician™ (@IcelandicStats) 6 October 2018