Áhugafólk um íþróttir fagnaði vel um síðustu helgi þegar fyrirliði karlalandsliðsins í fótbolta, Aron Einar Gunnarsson, snéri aftur á knattspyrnuvöllinn. Endurkoma sem margir höfðu beðið eftir og þessi þjóðhetja frá Akureyri hafði ekki spilað fótbolta í 116 daga þegar hann byrjaði í sigri Cardiff á Fulham í ensku úrvalsdeildinni. Aron hafði ekkert spilað síðan Ísland féll úr leik á HM í Rússlandi gegn Króatíu.
Aron hefur misst af fjórum landsleikjum í röð og það hefur reynt á hann, Aron hefur alltaf viljað mæta í landsleiki þrátt fyrir meiðsli og harkað sig í gengum það. Í þetta skiptið gat hann það ekki, Aron ætti hins vegar að snúa aftur í nóvember þegar liðið mætir Belgíu og Katar.
Erfitt að horfa á landsliðið ströggla
Aron hefur misst af fjórum landsleikjum eftir HM, þar sem hann hefur verið meiddur. Liðið fékk vonda skelli og umræðan hefur breyst fljótt. Talað er um krísu hjá landsliðinu, nokkrum mánuðum eftir að liðið komst á HM.
,,Þetta hefur verið mjög erfitt, þegar ég hef verið meiddur þá hef ég farið og hitt hópinn. Að vera heima og vera ekki partur af hópnum og stemmingunni í kringum það, það hefur verið erfitt. Sérstaklega í fyrstu tveimur leikjunum gegn Sviss og Belgíu, að sjá félagana í veseni var erfitt. Mér leið eins og ég ætti að vera þarna með þeim og ströggla og reyna að hjálpa til, fá drullið yfir mig líka. Vera með og taka ábyrgð, það var erfitt að taka því. Síðustu tveir leikir voru flottir og menn sá hvernig voru að bregðast við. Við fengum Jóhann Berg og Alfreð aftur inn, fleiri leikmenn með mikla reynslu. Það var mikilvægt upp á sjálfstraustið,“ sagði Aron Einar í samtali við 433.is í vikunni en ítarlegt viðtal birtist við hann síðar í dag.
,,Það er hluti af þessu að hlusta á slæmu umræðuna líka, við tökum því eins og menn. Við kvörtum yfir þessu okkar á milli og ætlum að sýna okkur og sanna aftur. Það er búið að afskrifa okkur, það er líka alveg ágætt. Við höfum alltaf eitthvað að sanna og bæta, við erum enn að bæta okkur. Með nýjum þjálfara, Erik Hamren, koma nýjar áherslur. Við eigum nokkur góð ár eftir til að halda áfram á sömu braut. Menn eru ekki saddir þrátt fyrir að það séu búin tvö stórmót í röð, maður hefur tekið eftir slíkri umræðu. Það er gaman að vera á stórmóti og menn vilja þangað aftur. Það er hugur í mönnum.“