fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Arnar Grétarsson er farið að klæja í puttana að þjálfa aftur – Á leið í UEFA Pro Licence

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 21. september 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lítið hefur farið fyrir Arnar Grétarssyni fyrrum þjálfari Breiðabliks síðustu mánuði, hann hefur safnað að sér fróðleik og þekkingu. Hann er nú á leið í að mennta sig meira sem þjálfari og er farið að klæja í puttana um að komast aftur út á völl. Arnar var rúm tvö ár sem þjálfari Breiðabliks en var rekinn úr starfi í upphafi tímabils í fyrra. Uppsögn Arnars kom nánast öllum á óvart, þarna var gömul hetja mætt aftur til uppeldisfélagsins og hafði unnið gott starf að flestra mati. Hann var í sínu fyrsta starfi í þjálfun eftir farsælan feril sem leikmaður og síðan yfirmaður knattspyrnumála hjá AEK Aþenu og Club Brugge. Arnar byrjaði frábærlega í starfi, náði að bæta stigamet Breiðabliks í efstu deild árið 2015. Sumarið 2016 var lengi vel gott, liðið barðist á toppi deildarinnar en mistök undir lokin reyndust liðinu dýrkeypt, liðið missti af Evrópusæti. Þar bar Arnar talsverða ábyrgð en ekki síður leikmenn félagsins, það var svo eftir tvo leiki í fyrra sem Arnar var rekinn úr starfi. Hann hefur síðan þá rætt við nokkur félög um að koma aftur til starfa, bæði hér heima og ytra en ekki stokkið á það hingað til.

Á leið í UEFA Pro Licence ytra
Arnar hefur í nokkurn tíma reynt að komast að í UEFA Pro Licence, sem er hæsta menntun sem þjálfarar komst í dag, sem aðeins er hægt að taka ytra, nú er komið að því. Hann hefur fengið velvirði fyrir því að taka prófið í Belgíu en skoðar þó aðra kosti. ,,Ég er búinn að vera að bíða í langan tíma eftir því að komast í UEFA Pro Licence, allt frá því að ég kláraði A-stigið hjá KSÍ. Ég hef rætt við yfirmenn fræðslunefndar KSÍ, ég vildi strax komast í þetta. KSÍ hefur bara verið með eitt pláss í þetta í gegnum enska knattspyrnusambandið. Ég veit að það erfitt að komast í þetta, ég held veit að þeir séu komnir með fleiri pláss í dag í gegnum Írland og fleiri lönd. Því er Það orðið betra,“ sagði Arnar þegar við ræddum við hann um hvað væri í gangi hjá sér þessa dagana.

,,Ég hafði samband við Chris Van Puyvelde yfirmann íþróttamála hjá belgíska knattspyrnusambandinu hvort ég gæti tekið námskeiðið hjá þeim og tók hann strax mjög vel í það, af því fer þetta af stað, það er komið grænt ljós frá þeim, ég var að fylla út formlega umsókn hjá þeim um daginn. Eina sem ég er að skoða hvort það opnist dyr á þetta í gegnum annað land. Hjá Belgum þarf maður að mæta á þriggja vikna fresti í 16 mánuði, þeir eru alltaf með allan mánudaginn og hálfan þriðjudaginn, í þriðju hverri viku. Það eru því gríðarlega mikil ferðalög og flakk, ég ætla að skoða ef það eru aðrir möguleikar í stöðunni. Ef það kemur ekki, þá tek ég þetta. Mér skilst að þeir sem hafi farið til Bretlands, séu að fara fimm eða sex ferðir út í námið. Það munar um það, markmiðið er að klára þetta.“

,,Ég horfi á þetta sem MBA nám fyrir knattspyrnuþjálfara, sama hvað menn gera svo í framhaldinu. Þetta nýtist á fleiri stöðum en þar samt, ég er búinn að vera í fótboltanum frá því að ég man eftir mér. Þetta er stór hluti af manni, þetta rúma ár án fótboltans hefur verið skrýtið. Maður hefur reynt að nýta þann tíma til að bæta við sig þekkingu.“

Heilbrigt að hugsa hugmyndir sínar
Frá því að Arnar missti starfið í Kópavogi hefur hann reynt að bæta við sig þekkingu, hann segir að það geti verið hollt að líta aðeins í eigin barm i svona stöðu. ,,Það sem gerist þegar menn eru reknir, þeir fara að hugsa hlutina alla upp á nýtt. Menn setjast niður og setja spurningarmerki við það sem þeir voru að gera, hvað gerði ég rangt? Get ég, gert eitthvað betur. Það er bara heilbrigt, svona gera menn yfirleitt ekki nema að þeir lenda í svona mótlæti. Ég hef verið að panta mér bækur og lesa mér til gagns, það nýtist mér vonandi í framtíðinni. Manni er í raun farið að klæja í puttana að komast út á völl. Þegar þú ert þjálfari, þá sérðu eitthvað sem þú ert að búa til, þú sérð afraksturinn. Maður er með ákveðna hugmyndafræði, hvernig maður vill að leikurinn verði spilaður. Ég hef reynt að nýta mér þennan tíma vel.“

Tók fram skóna í sumar
Þetta rúma ár sem Arnar hefur verið frá þjálfun er í raun í fyrsta sinn frá því að hann hóf að leika knattspyrnu sem ungur drengur, þar sem hann er ekki í fótboltanum. Það breyttist þó um mitt sumar þegar hann tók fram skóna, hann lék með Álftanesi í fjórðu deildinni. Liðið var mjög nálægt því að komast upp um deild. ,,Ég man bara eftir mér í fótbolta, það var skrýtið að vera ekki í neinu í eitt ár. Marel Baldvinsson (Þjálfari Álftanes) bjargaði sálinni, ég hjálpaði þeim reyndar ekki mikið. Ég fékk mjög mikið út úr því, þetta er flottur hópur. Að koma þangað sem leikmaður, var mjög gaman, reyndar hundgamall. Ég gat nánast verið afi sumra leikmanna. Það var rosalega gaman að taka þátt í því.“

Byrjaður að sakna þess að þjálfa
Arnar segir að markmið sitt sé klárt, honum langi aftur út í þjálfun. ,,Fótboltinn hefur verið stórt partur af lífinu, ég held að allir þeir sem hafi spilað fótbolta kvitti undir það, að það er skrýtið að hætta að spila fótbolta. Það er erfitt að hætta spila, ég hef alltaf sagt við menn að spila eins lengi og þeir geta. Sama er svo með þjálfunina, ég finn það að maður er byrjaður að sakna þess. Fara ekki inn í klefa og reyna að búa til hluti. Það er best í heimi að spila fótbolta, þjálfunin kemur þar á eftir. Þú ert með í allri stemmingunni í kringum þetta, allt í kringum fótbolta er í blóðinu manns.“

Skoðar þau tilboð sem koma
Arnar ætlar að vera með opinn huga og skoða það sem kemur á borð sitt. ,,Ég skoða allt sem kemur á borðið hjá mér, það er ýmislegt sem kemur til greina hjá manni. Auðvitað er það þannig í fótbolta, að allir sem taka þátt í leiknum vilja vera í Pepsi deildinni hér heima. Vera með lið sem gerir tilkall til þess að gera eitthvað. Svo verður bara að koma í ljós hvað verður í boði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Xavi fundaði með Barcelona í dag

Xavi fundaði með Barcelona í dag
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ólafur Karl Finsen orðinn leikmaður Vals

Ólafur Karl Finsen orðinn leikmaður Vals