Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með íslenska landsliðinu sem mætir Sviss í Þjóðadeildinni í dag.
Um er að ræða fyrsta leik Íslands í keppninni og er andstæðingurinn Sviss. Okkar menn fá svo Belgíu í heimsókn í næsta leik.
Það er áfall fyrir Ísland að Jói Berg sé ekki með en hann er einn af okkar mikilvægustu leikmönnum.
Því miður er kantmaðurinn knái að glíma við meiðsli og verður ekki með. Hann þekkir það vel að mæta Sviss.
Jói Berg gerði þrennu síðast er Ísland og Sviss áttust við í undankeppni HM 2014 í ótrúlegum leik.
Þeim leik lauk með 4-4 jafntefli í Sviss en sem betur fer fyrir Sviss þá verður Jói ekki með liðinu í dag.
Skellur að geta ekki spilað leikinn í dag hef alltaf kunnað vel við mig í Sviss. Gangi ykkur vel í dag strákar @footballiceland
— Johann B Gudmundsson (@Gudmundsson7) 8 September 2018