Sérfræðingar ESPN eru afar svartsýnir á það að Ísland komist upp úr riðli sínum á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi.
Þeir tala niður íslenska liðið og gera lítið úr afreki liðsins á Evrópumótinu í Frakklandi.
„Ísland gat komið á óvart á EM í Frakklandi, það nýtti liðið sér,“ segir Mark Ogden blaðamaður ESPN um málið.
,,Þeir spiluðu ekki einu sinni það vel, Ísland vann einn alvöru leik gegn Englandi. Þeir voru ekki merkilegir í riðlakeppninni, Frakkland slátraði þeim svo. Ísland er ekki nýtt lið sem getur gert kraftaverk, liðið hefur spilað yfir getu,“ sagði Ogden en ekki þarf að taka fram að hann er frá Englandi.
Í þættinum talar Julian Laurens frá Frakklandi einnig um liðið. ,,Það er einfalt að lesa leik Íslands, Gylfi Þór Sigurðsson er stjarna liðsins og hann hefur ekki leikið vel fyrir Everton. Ég tel að Íslandi muni ekki vegna vel á HM.“
Gabriele Marcotti frá Ítalíu bætti við. ,,Ísland endar í neðsta sæti í sínum riðli,“ sagði Marcotti en Ísland er með Argentínu, Króatíu og Nígeríu í riðli.